Góð heilsa
Góð líðan.
Um okkur
Sigma heilsa er heilsumiðstöð sem var stofnuð árið 2022. Unnar Már Unnarsson og Karitas Óskarsdóttir eru eigendur Sigma heilsu, draumurinn var alltaf að geta starfað í góðu umhverfi þar sem fjölbreyttar starfsstéttir starfa á sama stað og hjálpast að.
Að mínu mati getum við bæði dýpkað þekkingu hvor annars og allra starfsmanna með því að kenna hvert öðru og einnig séð betur um skjólstæðinginn sem leitar til okkar þar sem við erum með svo fjölbreytta þjónustu í starfsstöðinni.
Við erum auðvitað með strangar reglur þegar kemur að trúnaði á milli skjólstæðings og fagaðila og þess vegna leiðbeinum við frekar okkar skjólstæðing yfir á annan fagaðila ef við teljum þörf á því frekar en öfugt.
Tímabókanir hjá Unnari osteópata fara fram á Osteo.is
Timabókanir hjá Ólafíu sjúkraþjálfara fara fram í gegnum síma 583-5550 kl 8-16 á virkum dögum.