Osteo
heilsumiðstöð
Um okkur
Unnar Már Unnarsson er eigandi Sigma heilsu og Osteo heilsumiðstöð, hann er löggiltur osteópati og útskrifaðist úr háskóla í Gautaborg, Svíþjóð. Unnar hefur ávallt verið mikill heilsu spekúlant og hefur haft gríðarlega mikinn áhuga á mannslíkamanum og öllu sem kemur að heilsunni því frá því að hann var ungur. Honum finnst skemmtilegast við starfið að geta aðstoðað fólk með ýmis vandamál og einnig að geta kennt fólki ýmislegt til að stuðla að eigin heilsu. Osteópati meðhöndlar svo til einungis með því að beita höndum á liðamót og mjúkvefi viðskiptavinarins með það í huga að endurheimta fyrra heilbrigði, blóðflæði eða óhindruð taugaboð. Til þess eru notaðar margs konar aðferðir svo sem nudd, liðteygjur, vefja- og vöðvameðferð og hnykkingar auk fjölda annarra.
Osteópatía getur hjálpað við flest þau vandamál sem stafa frá lið- og vöðvakerfi líkamans. Nokkur dæmi um það eru:
- Bakverkir
- Hálsverkir
- Verkur eða stífleiki í liðamótum
- Gigtarverkir og vefjagigt
- Íþróttameiðsl
- Leiðandi verkir út í hendur eða fætur
- Höfuðverkir
- Mígreni
- Svimi og fleira ef upptök eru frá stoðkerfi
- Bráða sem króníska verki.
Osteópatía er fyrir unga sem aldna, íþrótta- og skrifstofufólk. Ég starfa einnig með óléttar konur á meðgöngu og eftir meðgöngu og með ungabörn og börn.
Tímabókanir hjá Unnari fara fram á Osteo.is
Þjónusta
Fyrsti tími
þar er farið yfir söguna, hvað gerðist og hvernig vandamálið byrjaði. Það er einnig greint líkamsstöðu og beitingu og notað ýmis bæklunar próf og próf til þess að reyna að komast að því hvað er að trufla viðkomandi. Það er oftast einnig tími til þess að fara í svolitla meðferð í fyrsta tíma ef skoðun og saga gengur vel.
Lengd: 50-60 mínútur
Verð: 22.900 kr.
Endurkoma
Hér er unnið beint í vandamálinu og meðferð haldið áfram eftir því hvað fyrsti tími leiddi í ljós.
Lengd: 30 mínútur
Verð: 10.000kr
Gjafabréf
Gjöf sem stuðlar að góðri heilsu. Inniheldur fyrsta tima eða fyrsta tima plús endurkomu